Velkomin á vef minn
þar sem ég hýsi með leyfi Hins íslenska Biblíufélags Biblíuþýðinguna frá 1981.
Ég er einn af þeim sem telja þessa þýðingu betri í heildina en nýju þýðinguna frá 2007. Því lagðist ég í það verkefni að endurhanna efnið með tilliti til þess að hafa allan textann á einni vefsíðu svo að auðveldara sé að fletta og leita á henni.
Í þessari útgáfu er sem sagt að finna Biblíuna í heilu lagi þar sem fljótlegt er að fletta upp og finna með vafranum þar sem textanum er ekki skipt upp í mismunandi html-einingar.
Um leið þarf að hafa í huga að þetta er mikill texti og gæti tekið allnokkrar sekúndur að hlaða efninu inn.
Útgáfan er hönnuð fyrir borðtölvur, kjöltutölvur (laptops) og spjaldtölvur
en hún hentar ekki fyrir farsíma. Bæði er það vegna magns textans og einnig þess að ég legg áherslu á að hafa tengla inn á hverja bók og kafla Biblíunnar sjáanlegan og það leyfir svo lítið tæki sem farsími ekki.
Í þessari útgáfu hef ég yfirmerkt (highlight) ýmsa texta, svo sem lykilorð o.fl. Ég mun væntanlega halda áfram að bæta við það eitthvað, því að alltaf er maður að sjá eitthvað nýtt sem talar sérstaklega til manns. Lesendur mega senda sínar tillögur í tölvupósti á bodvar@bodvar.is og mun ég bæta því við ef mér finnst það eiga við. Einnig hef ég leyft mér að setja inn athugasemdir til skýringar eða leiðréttingar þar sem ég veit að þýðingin er röng eða gæti verið skýrari. Með það leita ég í önnur tungumál og frummálin, hebresku og grísku.
Til eru aðrar útgáfur, aðgengilegar sem öpp fyrir farsíma (Android og iPhone) sem mæla má með.
Smellið hér til að skoða eða lesa Biblíuna og kynna ykkur hvernig þessi útgáfa virkar.
Það má einnig hlaða öllu efninu inn á tölvu þannig að Biblían sé aðgengileg án nettengingar.
Gerðu það með því að smella þessa þjöppuðu skrá, Biblia.zip.
Þessi skrá inniheldur tvær skrár sem vinna saman og verða að vera í sömu möppu,
biblia.html sem er allur textinn og bibl.css sem stýrir útlitinu.
Hafðu samt í huga að af og til koma endurbætur með nýjum merkingum á texta og jafnvel athugasemdum og skýringum.
Það er því gott að kíkja á vefinn aftur eftir nokkrar vikur eða mánuði og fá nýja útgáfu.